Skip to product information
1 of 1

MUMIJO ÍSLAND

Lífrænt mysuprótein úr grasfóðruðum kúm 1kg

Lífrænt mysuprótein úr grasfóðruðum kúm 1kg

Regular price 8.990 ISK
Regular price Sale price 8.990 ISK
Afsláttur Uppselt
Með VSK.

Lífrænt mysuprótein úr grasfóðruðum kúm

Innihald: 100% lífrænt mysuprótein

Unnið úr heilbrigðri kúamjólk þar sem kýrnar lifa frjálsar á næringarríkum grænum túnum í eigu smábænda. Kýr sem búa við slík skilyrði eru hamingjusamari og heilbrigðari, sem skilar sér í næringarríkari og andoxunarefnaríkari mysu en í til að mynda hefðbundnu próteindufti. Varan hefur gengist undir lágmarks vinnslu og er án viðbætts soja-lecitíns, sætuefna, rotvarnarefna eða fylliefna. Flest hefðbundin mysuprótein á markaði innihalda óæskileg aukaefni – þessi vara er hrein og náttúruleg.

Áhrif mysupróteins:

  • Vöðvauppbygging
  • Endurheimt eftir álag
  • Stuðlar að sáragræðslu
  • Eykur seddu tilfinningu og dregur úr sykur löngun
  • Styður við beinþéttni og efnaskipti
  • Eykur orku og ónæmiskerfi

Mysuprótein er eitt áhrifaríkasta og mest rannsakaðasta fæðubótarefnið á markaði í dag. Það inniheldur allar 9 lífsnauðsynlegu amínósýrurnar og er auðupptakanlegt í líkamanum.

Stuðlar að auknum vöðvamassa og frammistöðu

• Eykur próteinsmíði og vöðvavöxt  
• Örvar seytingu vöðvavirkjandi hormóna eins og insúlíns
• Hátt hlutfall leucine, amínósýru sem örvar vöðvavöxt á sameindastigi
• Hröð og auðveld upptaka í líkamanum

Eykur fitubrennslu og mettun

• Prótein eykur efnaskipti og minnkar hungur
• Viðheldur vöðvamassa þegar þyngdartap á sér stað
• Eykur seddu tilfinningu eftir máltíð

Hágæða BCAA

Grasfóðrað mysuprótein er sérstaklega ríkt af BCAA (leucine, isoleucine og valine) og cysteine.
• Leucine er sú amínósýra sem eykur vöðvavöxt hvað mest.
• Cysteine eykur glútatíón – eitt öflugasta andoxunarefni líkamans
• Stuðlar að myndun hormóna, ensíma og taugaboðefna

Styður ónæmiskerfið og verndar gegn sýkingum

• Immunoglobulín: Örvar ónæmisfrumur, hlutleysir veirur og bakteríur
• Laktóferrín: Hindrar vöxt sýkla með því að draga úr aðgengi að járni
• Beta-laktóglóbúlín: Flytur amínósýrur til ónæmiskerfisins
• Sialic acid: Minnkar líkur á smitun (t.d. E. Coli, H. pylori) og eykur vöxt vænlegra baktería til að mynda magagerla.
• Glútamín: Orkugjafi fyrir hvít blóðkorn og ónæmisfrumur
• Selen: Öflugt andoxunarefni sem dregur úr bólgum og styður við ónæmiskerfið

Skammtar:
Skammtastærð: 20–30g
Skammtar í íláti: 30

100g inniheldur að meðaltali:
• Fita: 8g
• Prótein: 80g
• Kolvetni: 3,5g

Notkunarleiðbeiningar:
20–30g daglega eða samkvæmt ráðleggingum heilbrigðisstarfsmanns. Hægt að blanda við vatn, mjólk, safa eða í hristinga.
• Eftir æfingar til að styðja við endurheimt, orku og efnaskipti
• Daglega með máltíð til að auka daglegt prótein
• Fyrir eða eftir föstu til að viðhalda vöðvamassa og stöðugleika í blóðsykri

Sjá allar upplýsingar